Aðalvalmynd

Auglýsing

... og núna má ég allt ég á AFMÆLI í dag

22. maí 2007 klukkan 17:40
Ég vil þakka  fyrir allar afmæliskveðjurnar sem ég er búin að fá í dag, alveg yndislegar. Alda þegar ég las þitt sms fékk ég örlítin kökk í hálsin svo fallegt var það sem og fallegu orðin á drama síðunni. Skemmtilegt frá Lottu og passar vel nema veit ekki með ljóðalesturinn og það úff úff. Svo bara allar vinkonur mínar takk kærlega fyrir kveðjurnar kossar og knús.....  Dagurinn er svo sem ekkert búinn að vera öðruvísi en aðrir dagar þó svo að mér finnist hann eigi að vera svoleiðis mætti reyndar í vinnunna þá voru nemendur mínir búnir að baka handa mér stóra súkkulaðiköku sem við gæddum okkur á áður en við héldum í myndlistaskólann þar sem við höldum til þessa vikuna. Ég fór heim strax eftir kennslu og þá beið mín pakki frá Signýju og tvær gulrótakökusneiðar skreyttar kertum sem ég fékk að blása á og að sjálfsögðu óskaði eg mér. Ég svaraði nokkrum símtölum frá fjölskyldunni áður en ég fékk mér afmælisblundinn minn. Síðan tók sorpa við þar sem ég henti mörgum ruslapokum af dóti þar sem ég og Signý erum að flytja.
Núna er Signý að vinna svo að ég mun ekki eyða kvöldinu með henni. Systir mín að vinna svo ég mun ekki eyða kvöldinu með henni. Ég spurði  jóhannes hvort að við tækum ekki æfingu í dag en nei nei hann er of upptekinn þar sem hann og beta og Rósa eru að fara að elda handa mér afmælisdinner í kvöld. Ljúft það.
Morgunn er síðan annar dinner hjá Dramadrottningunum reyndar ekki til heiðurs mér en ég ætla að láta sem svo sé. Ullandi Hafið það sérstaklega gott í tilefni dagsins
Ætla að setja inn á það sem Lotta komst að um fólk sem á afæmli þennan dag
Elsku elsulegasta Ása mín innilega til hamingju með daginn.
Ég hringdi í Betra líf og fékk smá upplýsingar hjá þessari yndislegu konu.
Hvernig manneskja sem er fædd þennan dag er:)
Liturinn þinn Ása mín er: Silfraður (skondið það þú varst svo stórglæsileg í silfraða kjólnum þínum um daginn;)
Steinninn þinn er: Hematít.
Dýrið þitt er: Dúfa
Starfið þitt er: Leikari,Uppfinningarmaður eða Landkönnuður. (þú þarf eitthvað að endurskoða starfið þitt ljúfan:)
Sérkenninþín eru: Hraði,þolgæði og heppni (þú skalt halda vel í þessa heppni)
Manneskja sem er fædd þennan dag er snillingur í að ná markmiðum sínum:
Hún hefur líka mikkla yfirburði og er hingað komin í dýpri tilgangi en flestir aðrir (ekki slæmt það Ása mín)
Hún er forvitin og fróðleiksfús:)(þarna kemur kennarinn í ljós)
Manneskja fædd þennan dag gæti uppgötvað eitthvað einstakt fyrir heiminn.
Hún hefur sérstakt og opið hugarfar.
Það getur tekið hana tíma að ákveða hvað hún vill en þú átt að kýla á það.
AHA ÁSTARMÁLIN:)
Manneskj fædd þennan dag er brennandi í ástinni í upphafi sambands. En ruglast í rýminu ef makinn þinn skylur ekki þá heimspeki sem þú lifir eftir:)
Þú laðast að einstöku fólki og ekki reyna að breyta því ljúfan mín:)
VATSBERI myndi henta vel sem maki fyrir þig:)
Óskagjöfin er: hahahahaha
Gjafabréf í bókabúð eða ljóðaupplestur.
Áttu indislegan dag Love Lotta.

Bestu kveðjur
Afmælisstelpan

Tímamót

17. maí 2007 klukkan 18:46
Hér í Gullsmára gengur mikið á  hér eru flestr hlutir farnir úr stofunni nema stærstu og sama er að segja um edhúsið en nú er komin sá tími að ég og Signý erum að slíta samvistum. Signý er búin með Háskólan og ætlar að flytja norður en ég ætla að vera hér allavega í ár í viðbót við eigum að skila íbúðinni af okkur 1. júní.Signý verður reyndar farin 30.maí og þar með verð ég alein hér án alls dóts í 2 daga það verður fínt svona útilegufílingur með rúmi alveg eins og ég vil að útilegur séu. En kennslu verður ekki lokið fyrr en 12. júní svo ég mun pússla þessu skemmtilega saman hvar eg verð samkvæmt plani verðiur það þannig að 1-3. júni Akureyri, 3-5. júní Eggertsgata, 5-12 júní Sóleyjargata, 12 - 16. júní Álfheimar 16. júní - 12. ágúst Akureyri. 12 ágúst - ?? Rvík en ekki komin með heimili.  En endilega ef þið vitið um eitthvað látið mig vita !

Ég er undir áhrifum .....

21. apríl 2007 klukkan 20:59
Ég þýt út í geim, sofandi vakandi finn ekki leiðina heim, ég horfi á sjálfa mig reyni að vakna en hugurinn tekur öll völd.... þetta er tónlistargetraun hvað heitir lagið og hverjir flytja?

Akureyri

02. apríl 2007 klukkan 13:00
Þá er ég mætt á eyrina .. kom reyndar á föstudaginn, ég var bara klár með töskurnar í bílnum og eftir vinnu sótti ég Sóldögg og við brunuðum saman norður þar sem beið okkar veislumatur og ekki nóg með það á rúmunum okkar voru páskaliljur og bodylotion hún mamma klikkar ekki á svona. Lítið var gert á föstudaginn nema bara farið snemma að sofa.

Vaknaði snemma á laugardaginn fór í klukkututíma á þrekhjólið síðan ræsti ég sóldögg og við brunuðum á Grenivík þar sem við fórum í klippingu hjá Sveinlaugu og svei mér þá ég er hreinlega orðin dökkhærð eða nánast. En skemmtilega við það var að Alda var líka að fara í klippingu svo það var aldeilis stuð og fjör hjá okkur. Komum heim og Sólin hringdi í vinkonur sínar og mér var bara hent inn í herbergi og átti ekki mikið að koma fram.... ætli hún skammist sín fyrir mig? Nú svo ég kæmist út með Öldunni um kvöldið fékk Sóldögg sttelpur til að gista ég sótti pizzu og spólu handa stúlkunum. Alda kom og við hlustuðum á góða tóna í tölvunni eins og Auður með Sálinni ,Chicago og allskonar alveg brilliant tónlist, fórum síðan upp á Hamra þar sem Villi hennar Öldu var í lögreglupartý og OMG hvað ég var komin í feitt ég kynntist fíkniefnalögreglunni, lögreglunni hjá tolsstjóra, sérsveitalögreglunni, almennu lögreglunni ofsalega gaman hreinlega svo fórum við á Amor og kaffi AK ...þegar ég kom síðan heim var Sólögg bara enn vakandi.

Daginn eftir var ég hreinlega að deyja búinn að blanda alltaf mörgum tegundum saman en náði að hressa mig með því að ég og sólin fórum í sund og svo að sjálfsögðu gerði brynjuísinn mikið fyrir mig.

Jæja þarf að hjálpa Sóldögg að setja trampólínið upp
Heyrumst

...

28. mars 2007 klukkan 17:55

ÉG er gersamlega búinn að stúdera Sex and the City þættina frá A - Ö, það er mikill lærdómur í þessum þáttum og ekki síst fyrir karlaurinn þarna úti. Þeir gætu lært mikið á þeim þ.e. hvernig á að koma fram við okkur dömurnar. Reyndar þegar ég var búinn að horfa á seríur 1-4, Carrie búin að hitta hina og þessa menn ofsalega góður t.d. hann Aiden, fínn líka hann Berger en þegar þa´ð var allt út úr myndinni þá nennti ég ekki að horfa á fleiri sambandsslit þannig að ég fór bara í seinasta þáttinn í 6. seríu því þar vissi ég að Carrie og Big myndu loksins ná saman það gaf mér svo mikið ég er reyndar núna búin að horfa á þann þátt 4 sinnum. Það er svo gaman að horfa á þessa þætti því oftar en ekki finnur maður sjálfan sig og aðrar vinkonur í þessum fjórum vinkonum.

Það er nú lítið að gerast þessa dagana nema rosalega finnst mér gleðilegt að sólin sé farin að skína og dagurinn orðin langur ofsalega gott og gaman fyrir sálartetrið.

Ég var orðin leið á að æfa ein í Sporthúsinu svo ég tók þá afdrífaríku ákvörðun að kaupa mér kort í World Class þar sem ég get þá æft með Betu, það er gaman ég bara kann ekki alveg á stöðina sem fer notturlega í taugarnar á mér ... veit ekki um nein tæki en það hlýtur að koma með tímanum. Reyndar á ég enn kort í Sporthúsinu og nota það á morgnanna þar sem það er örlítið nær en World Class.

Ég er í þessum töluðu orðum að bíða eftir fasteignasala þar sem það á að selja íbúðina okkar þetta er hreinlega að eyðileggja ræktarplanið djöfulsins djöfull það hlýtur að dragast eitthvað af leigunni við svona fyrirkomulag... núna fer að koma fólk að skoða íbúðina og við bara gera svo vel að fara út á meðan  og hafa alltaf allt spikk og span ..... ekki hrifin af þessu. 

Eeeen allavega ef þið eigið einhvern grímubúning handa mér þar sem það er furðufatadagur í skólanum á föstudaginn þá er hann vel þegin nemendur eru orðnir ofsa spenntir og finnst ofsalega spennandi að vita hvernig kennarinn verður en ég hef ekkert .... leiðinlegt svolítið.

Ljótt að segja það en það var aftur Singstar partý hjá lottu þar seinustu helgi og eru nýjar singstar myndir inn á myndaalbúmi nr. 25

Góða helgi

09. mars 2007 klukkan 19:56
Ég var að keyra um daginn fallegt veður úti, ég og útvarpið einungis að gera góða hluti en þar sem ég er mjög ástfanginn þessa dagana (eða allavega halda götuljósin það ) gerist það gjarnan að ég lendi á rauðu ljósi. Þegar ég lít í næsta bíl við hliðina á mér er þar maður meira að segja huggulegur en hvað gerir huggulegi maðurinn ..jú jú fer að bora upp í nefið á sér ... ég nennti ekki að horfa meira. Svo fór ég að hugsa og alveg mjög djúpt hvað ef maðurinn væri aðeins að taka til í nefinu á sér með puttanum en síðan er t.d. keyrt aftan á hann. Nær hann að ná puttanum úr nefinu áður en andlitið skellur á stýrið eða fer bara puttinn upp í heila og gæti jafnvel drepið mann. Þetta er eitthvað sem þarf að rannsaka, ég meina gsm síminn hefur þó ekki þau áhrif enda nánast engir símar í dag með loftneti upp í loftið.Svalur 


Um seinustu helgi var tekið á því og farið á 90´s ball en áður en við fórum þangað var matarboð hjá Lottuskott þar sem hún bauð mér, Signýju,Telmu, Jóhannesi og Atla í mat, frábær matur og frábær félagsskapur. Singstar var málið þetta kvöldið og var mikið hlegið ég meina takið þið bara lagið Survivor með Destinys Child í battle það er bara grín .... og að hlusta á sjálfa sig í playback SNILLD. Við gleymdum okkur aðeins og vorum ekki komin í bæinn fyrr en 2 en þá fórum við á Nasa það var fínt en mun skemmtilegra í partýinu. Ég t.d. týndi öllum og var bara meira ein en loksins fann Signýju og þá Sigrún Þorsteins og Lotta farnar á Sirkus... Við Signý fórum þangað en ég var eitthvað óþolinmóð nennti ekki að bíða í röðinni og hótaði að fara bara á Celtic labbaði þar fram hjá og síðan í fremst í leigubílaröðina og heim og það var svo skemmtilegt að þegar ég skellti hurðina kemur litla Signý mín heim sem gafst einnig upp á röðinni á Sirkus.   FULLT AF MYNDUM FRÁ KVÖLDINU INN Í ALBÚMI 25


Frænka mín hringdi á Sunnudaginn svona líka hress í þynnkunni og hvað þýðir það jú eitthvað skemmtilegt hefur gerst kvöldið áður og það var rétt tilgetið. Hún fór heim með strák... segir svo Ása þú hefðir átt að sjá hann, hann var alveg geggjaður eins og hann hafi verið að koma af fjöllum og hafi verið þar í ár... með sítt skegg , úfið mikið hár .... hmmmm ekki fyrir mig. En þetta var býsna lífleg nótt hjá þeim sem var frábært. En kannski það sem mér fannst fyndnasta við þetta allt saman. Hann spyr um símann hjá henni og mín búinn að horfa á nokkrar bíómyndir og segir flettu bara upp á mér í símaskránni...SVÖL eða ??? Æji ég veit það bara alls ekki og þá sérstaklega ekki þar sem númerin í símaskránni eru ekki í notkun. Jæja en ég gat grafað hans upp og þá var komin tími á að senda sms svo að hann fengi þá aðallega rétt númer hjá henni... þá var hvað ætti að skrifa ? Mér datt í hug eitthvað bara þú veist Hæ frábært kvöld eitthvað svona en það þótti leim heldur fannst henni eigum við að r..a í kvöld eða langar í heitt bað með þér ? En við fundum milliveginn á þessu... og varð því ertu til í annað svona kvöld eða eitthvað svoleiðis. Gráðugur 

Annars er helgi og ég ætla að vera voða róleg..... ÉG VEIT ÉG VEIT ef ég er bara alltaf svona heima þá gerist ekkert ..... en hey þeir hafa bankað upp á hérna reyndar alls enginn sem ég vildi en samt þetta gerist. 

Góða helgi

Hér er ég

22. febrúar 2007 klukkan 17:00
ÉG tók þá mikilvægu ákvörðun um daginn að ég nenni bara ekki að vera pirruð og tók enn mikilvægari ákvörðun og það er bara brosa. Fór t.d. út að borða á konudaginn, bara ástfangin pör voða hamingjusöm og í staðinn fyrir þið vitið nánast hrækja á svoleiðis lið tók ég þá ákvörðun að brosa bara og það var mikill munur.
Eins og ég ákvað að hætta að drekka um áramótin hafa komið nokkrar undantekningar á þá ákvörðun og er ég búinn að fara 3svar og búið að vera býsna gaman. Ég er í rauninni mikið búin að brasa á þessum djömmum mikið í að redda ýmsum málum t.d. hitti framkvæmdarstjór Blaksambandsins um daginn sem reyndar var að spila með KA þegar við vorum einnig og á fyrri djammfundinum ætlaði ég að finna nokkrar stelpur og hann ætlaði hjálpa mér síðan að finna á móti ef að það vantaði. Á seinni fundinum var ég komin með nokkrar, framkvændarstjórinn ætlaði að vera þjálfarinn og finna sal svo við getum æft í og við stefnum ótrauðar á öldungablakið, enda komnar til ára okkar, allavega ekki í öðrum flokki núna það er á hreinu. Hann fékk símann hjá mér og Lottu en hvorug okkar hefur heyrt í annars þessum ágæta strák en hann er notturlega örugglega sveittur að leita að sal og búningum og svona.

Á Valentínusardaginn var lítið um blóm en eitt fengum við þó í Gullsmáranum og það var að nú er búið að segja okkur upp íbúðinni og við eigum að fara út í júní. Við erum farnar að skoða auglýsingar og þess háttar um hvað er í boði. Lotta fékk síðan í afmælisgjöf í gær að hún ætti að vera farin úr sinni íbúð. Allt að gerast

Annars er ég bara á Akureyri í vetrarfríi ofsalega notalegt, hef nú reyndar gert voðalega lítið. Verið með fjölskyldunni, farið í klippingu, lit og plokk og svona hluti sem maður ávallt gerir hér fyrir norðan. Svo notturlega ræktin ohhh fylltist bara nýrri orku og aftur fannst mér gaman að æfa.

3. mars 90´partý á Nasa og við ætlum að fara við Akureyringar ætlum að fjölmenna hlakka rosa til spurning um að finna hvítu plastbuxurnar og magabolinn nú eða bara ekki

PIRRUÐ

14. janúar 2007 klukkan 03:54
Það er laugardagskvöld og er svo ógeðslega pirruð ég er hreinlega með uppsafnaðan pirring. Ég hata janúar .... janúar er ljótur og vondur mánuður öll jólaljósin slokkna og allt verður svo dimmt og ógeðlsegt og ekki nóg með það er allt á kafi i snjó og ég bara spóla allt sem ég fer á samt glænýjum nagladekkjum en nei nei spól spól spól bara ógeðslegt.

Ég þarf svo að gráta ég hef ekki fokkings grátið síðan að ég fékk skattinn minn í lok júlí gráturinn er bara´komin efst upp í kok og bara ekki sjens að ég felli tár ég meina ég horfði á mynd EKKERT MÁL sem ég hélt að ég gæti grátið yfir og losað aðeins um þetta. Þar sem vinir mínir og það strákavinir mínir viðurkenndu það að þeir hefðu grátið í bíó yfir myndinni og ekki nóg með það með ekka eftir myndina sem betur fer þekki ég þessa gaura sem eru sterkir sem naut mjög vel því ef einhver gaur sem ég þekkti ekki neitt myndi segja mér að hann hefði farið gráta yfir mynd hefði ég hreinlega þurft að hrækja á þann einstakling það væri ekkert hægt að segja og ekkert hægt að gera bara eina ráðið að hrækja á svoleiðis strákagrey. En allavega horfði á myndina ágætis ræma en ekki felldi ég eitt tár nei nei nei.  Ég held að ég sé með hjarta úr stáli eins og við kölluim svokallað stálhjarta

Signý er lasin og voða viðkvæm við horfðum á X-factor í gær og hún grét þegar einhvr datt úr eða einhver fékk að halda áfram að sjálfsögðu fussaði ég bara og sveiaði en hún er lasin og maður er nú heldur betur aumur þegar staðan er svoleiðis.

Strákar hata þá, hvað halda þeira að þeir séu sumir t.d. halda að þeir geti hringt fengið að koma í heimsókn og ég meina hvað er heimsókn sjaldan er það einn kaffi sem þeir meina já nei nei svei mér þá það er kaffi og MEÐ því hvar er virðingin ég er ekkert endilega að tala um mig í þessu samhengi jú kannski smá og kannski líka fleiri. Halda þeir að þeir geti hringt kannski á 1-2 mánaða fresti og kíkt í heimsókn og þess á milli heyrist ekki múkk í þessum andskotum....... þetta eru rottur rottur úr ræsinu og ættu að halda sig þar hjá hinum ræsisrottunum og láta okkur litlu sætu mýsnar með litlu rauðu slaufurnar í skottinu vera. Að sjálfsögðu látum við mýsnar í Gullsmáranum ekki koma svona fram við okkur ekki sjens sko því við erum vandaðar manneskjur, sætar og góðar og eigum það besta skilið og vitum það og þess vegna koma engar ræsisrottur hingað inn það hefur bara aldrei verið í boði og mun ekki vera. Ég t.d. hellti mér yfir kunningja áðan þar sem hann á ræsisrottu vin sem að hringir í frænku mína af og til 2-3 mánaða fresti og vill kíkja í heimsókn og þessar heimsóknir felast ekki í að ræða heimsmálin síður en svo en frænkan hefur tilfinningar til stráksinsog gefur alltaf undan þó svo að svona langur tíimi liði á milli hann kemur fær sitt og fer og ekkert heyrist í honum .... svona hefur þetta gengið í rúm 2 ár..... þegar ég næ í skottið á þessari rottu verður það slitið af.....ARRRRG

Strákar einungis vandamál..... af hverju er maður alltaf að spá í þeim það gerir ekkert fyrir mann ég ætla að fara að hugsa um eitthvað allt annað.... eitthvað gefandi .... eða klaustur má maður ganga í klaustur ætli ég myndi þá reyna við prestinn ... spennandi verkefni ætli hann myndi standast og bíta ekki á agnið ég veit það ekki

Farðu janúar ....... bara út í bílskúr........ HALLÓ FEBRÚAR

Jæja ætla að halda áfram að vera bara æst

ÞARNA KOMST ÉG AÐ SANNLEIKANUM Í ÞESSU MÁLI ... NOKKUÐ SÁTT

09. janúar 2007 klukkan 02:20
Women are like apples on trees: the best ones are at the top of the tree. Most men don't want to reach for the good ones because they are afraid of falling and getting hurt. Instead, they just get the rotten apples from the ground that aren't as good, but easy...
So the apples at the top think something is wrong with them, when in reality, they're amazing. They just have to wait for the right man to come along - the one who's brave enough to climb all the way to the top of the tree. remember ...
Men are like a fine wine. They start out as grapes, and it's up to women to stomp the crap out of them until they turn into something acceptable to have dinner with

í Tilefni dagsins

31. desember 2006 klukkan 23:14
ákvað ég að skella mér á Spámanninn.is og þar sem ég hef bullandi trú á árinu 2007 og ekki bara það þá hef ég líka bulandi trú á ástinni 2007 þannig að ég ákvað að draga mér eitt stykki ástarspil og þetta fékk ég

Stafagosi

Persónuleiki

Hér er á ferðinni lífleg manneskja sem færir þér skemmtilegar stundir og ekki síður spennu. Vinátta ykkar er án efa byggð á trausti. Persónan sem um ræðir birtist mér mjög glaðleg og nýtur þess að spjalla við þig oftar en ella. Viðkomandi færir þér góðar fréttir innan tíðar.

Aðstæður

Efnahagslegt öryggi knýr hjarta þitt ekki áfram hér heldur kýst þú að láta dekra við þig eins og lítið barn. Þú virðist vita hvað þú þráir á sama tíma og þú ert hugmyndrík/ur, næm/ur og þolgóð/ur. Þú ert fær um að skilja eigin tilfinningar. Hér birtist þú yndislega sveigjanleg/ur, greiðvikin/n og undantekningarlaust töfrandi í alla staði. Hér lætur sálin án efa undan með því að hlýða á hjartað. Glampi skín úr augum þínum sökum vellíðunar.

Lovely....... bara bjart og gott framundan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...